18.12.2008 | 16:27
Bara krakkar sem hafa ekkert betra við tímann að gera.
Jæja fyrsta bloggið mitt á mbl, þó nokkuð síðan ég stofnaði þessa síðu en hef ekki slegið til enþá.
Ég hef nú ekki mikið um þessa frétt að segja, þannig að fyrirgefið mér ef ég tala út og suður.
Ég hef ekki mikið um Jóns Ásgeirs málið að segja, kanski er það mér léttir að ekki var um meira að ræða en snjókast, ég man nú í "gamla" daga þegar bekkjarbræður mínir kaffærðumér svo illa einn veturinn að ég varð að fara heim að skipta um föt og úlpan lá til þerris í tvo daga, þá var ekki um upphlaup að ræða og ekki gat ég hlaupið í öruggt skjól. Það er í raun ótrúlegt að þetta hafi ekki gerst áður, það eru nú margir "glæponarnir" í þessu landi núna.
Það er eitt sem ég vil gjarnan blogga um, það eru þessir krakkar, "athyglissjúku krakkarnir, sem hafa ekkert betra við tímann að gera en kasta snjóboltum og brjóta eignir okkar, vita foreldrarnir af þeim þarna?."
Ég veit ekki hvaða fólk það var sem voru kallaðir hippar, enda var það löngu fyrir mína tíð, en ég hef sterkan grun um að það hafi verið krakkagemsar sem höfðu ekkert betra við tímann að gera og athyglissýkin uppmáluð, skemdarvargar sem fengu útrás sína við að skemma hluti, þeir stóðu ekki fyrir neinu, þótti ekkert að því sem stjórnvöldin voru að aðhafast og var als ekki misboðið.
Mér er illa við það þegar sagt er að þetta séu bara krakkar (því eru það ekki "við" sem eigum aðallega að mótmæla?), mér er líka illa við að það sé brotið rúður og kastað snjóboltum. í sannleika sagt er mér alveg ótrúlega illa við það að hafa 2 milljónir yfir höfði mér, og ég ekki einu sinni byrjuð að leigja. Mér er illa við það að í næstu kosningum sé ég ekki neinn flokk sem ég get kosið sem stendur með "mér" og mér er illa við að sjá sama fólkið reyna að byggja nýtt land, sem steypti því niður í leðjuna (og neðar). Mér er illa við það að friðsamlegu mótmælin hafi engin áhrif og enginn haggast úr sæti sínu. Hvað er næsta skref þegar það er ekki hlustað á þá friðsömu?
Rúður brotnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki er ég hissa á reiði þessa unga fólks,þaug eru kynslóðin sem kemur til með að þurfa að taka við þessu sukki frá spilltum stjórnvöldum okkar.Reyndar held ég að þessi átök ef má svo að orði komast séu rétt að byrja,ég tek þátt með þeim í huganum einsog er kannski fer maður og tekur þátt með þeim í verki. Velkomin á bloggið Ragnheiður.
Númi (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 18:08
Fólk er búið að átta sig á því að friðsöm mótmæli duga skammt. Ráðamenn ætla engu að breyta heldur bara sitja sem fastast og valda ennþá meiri skaða fyrir þjóðina og komandi kynslóðir.
Fer þar fremstur í flokki Geir Hilmar sem hefur fengið nýtt hlutverk sem táknmynd spillingar, heimsku, hroka og úrræðaleysis.
Það eina sem hann hefur áhuga á að gera núna er að viðhalda pólitískri spillingu. Honum virðist vera nákvæmlega sama um þjóðarhag.
Vonandi hans vegna, öðlast hann þann þroska í ellini sem þarf til þess að kunna að skammast sín. Hans verður mynst í sögunni sem forsætisráðherrans sem setti Ísland á hausinn með andvaraleysi sínu, aðgerðarleysi, spillingu og óhæfni, en neitaði samt að axla ábyrgð og segja af sér.
Fannar (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 18:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.