Leita í fréttum mbl.is

hmmm

Hvernig getur ekki verið neinn ljós púnktur þegar skorað eru 32 mörk? Hversu mikið þarf að vera að? Eins og Guðjón sagði svo réttilega, það á enginn að skora 32 mörk og fá engan bolta úr vörninni! (hann orðaði það að vísu öðruvísi, en nokkurnvegin svona)

En ekki það, maður vinnur ekki á mörkum aðeins, vörn verður að vera til staðar...

Ef vörnin kemst í lag þá eru okkur allir vegir færir, því sóknarleikur okkar er alls ekki slæmur, en hvort það gerist á tveimur dögum efast ég um...


mbl.is Róbert: Engin ljósneisti í leik okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gráti næst!

Ég veit ekki hvað ég á að segja. Ef ég væri ekki veik myndi ég ekki hika við að fara og mótmæla!

Ég þoli ekki að enginn sé búinn að segja af sér, ég þoli ekki að það sé hundsað stórann hlut þjóðarinnar.

Ég hata það að enginn hafi sagt af sér! á meðan það gerist ekki þá gerist ekki neitt (af viti amk)

Við erum aðhlátursefni í öðrum löndum, hvernig stendur á því að enginn, ENGINN sé búinn að segja af sér sem er viðráðinn þessu máli á alþingi (og annarsstaðar)?

Ég kaus samfylkinguna á mínum fyrstu kosningum. Þegar þetta skall á var ég því fegin að samfylkingin gæti nú látið á sér kveða, sýna þroska og koma sínum málum á hreint. Björgvin er góður maður, hann er góður stjórnmálamaður og hann átti að hafa vit fyrir því að segja af sér, þá hefði hann getað byrjað uppá nýtt, jafnvel boðið sig e-ntíman aftur fram, ég held að með þessu sé hann búinn að drepa pólitískan feril sinn! Því verður ekki neitað að samfylkingin hefur verið í ríkisstjórn í 2 ár og ÁTTI að taka eftir þessu og vera með skjótari viðbrögð. Um leið og Ingibjörg sagði þau afdrifaríku orð "þið eruð ekki þjóðin" þá minnkaði álit mitt svo á þessum flokki að ég er als ekki viss um að ég kjósi hann nokkurntíman aftur (ég er þó mikill stuðningsmaður þórunnar og jóhönnu)

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN sú sjálfsblekking sem hann hefur lifað í núna síðustu 16 árin. ég veit ekki hvar ég á að byrja með sjálfstæðisflokkin, mér hefur aldrei líkað vel við hann, pabbi minn var sjóari og mamma kennari, hvernig getur mér líkað við hann, ég fékk að kjósa það sem mér sýndist, en alin upp hjá móður sem er vinnualki og fær ekki mannsæmandi laun fyrir vinnu sína og föður sem horfði á vinnu sína í raun og veru hverfa er það ekki í eðli mínu að kjósa sjálfstæðisflokkinn! Þeir hafa verið sjálfum sér samkvæmir í þessu máli og vissi ég fyrir víst að það væri ekki við miklu af þeim að buast og þar á enginn eftir að segja upp. því hvernig geta menn sagt upp þegar þeir vita ekki að þeir gerðu e-ð rangt. EF ég hef gert e-ð rangt....

Framsókn - ég treysti þeim ekki fyrir fimmaura, mér þykir þeir þó sýna gott fordæmi að stokka upp í flokknum því það er það sem þarf að gera! en þeir verða alltaf flokkurinn sem skrifaði undir þessi meingölluðu bankamál!

Það þarf að sýna fólkinu í landinu þá virðingu að kjósa, þó ekki nema bara svo það geti skilað inn auðu. Því satt best að segja þá er ENGINN flokkur í dag sem ég myndi kjósa!


mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara krakkar sem hafa ekkert betra við tímann að gera.

Jæja fyrsta bloggið mitt á mbl, þó nokkuð síðan ég stofnaði þessa síðu en hef ekki slegið til enþá.

Ég hef nú ekki mikið um þessa frétt að segja, þannig að fyrirgefið mér ef ég tala út og suður.

Ég hef ekki mikið um Jóns Ásgeirs málið að segja, kanski er það mér léttir að ekki var um meira að ræða en snjókast, ég man nú í "gamla" daga þegar bekkjarbræður mínir kaffærðumér svo illa einn veturinn að ég varð að fara heim að skipta um föt og úlpan lá til þerris í tvo daga, þá var ekki um upphlaup að ræða og ekki gat ég hlaupið í öruggt skjól. Það er í raun ótrúlegt að þetta hafi ekki gerst áður, það eru nú margir "glæponarnir" í þessu landi núna.

 Það  er eitt sem ég vil gjarnan blogga um, það eru þessir krakkar, "athyglissjúku krakkarnir, sem hafa ekkert betra við tímann að gera en kasta snjóboltum og brjóta eignir okkar, vita  foreldrarnir af þeim þarna?."

 Ég veit ekki hvaða fólk það var sem voru kallaðir hippar, enda var það löngu fyrir mína tíð, en ég hef sterkan grun um að það hafi verið krakkagemsar sem höfðu ekkert betra við tímann að gera og athyglissýkin uppmáluð, skemdarvargar sem fengu útrás sína við að skemma hluti, þeir stóðu ekki fyrir neinu, þótti ekkert að því sem stjórnvöldin voru að aðhafast og var als ekki misboðið.

 Mér er illa við það þegar sagt er að þetta séu bara krakkar (því eru það ekki "við" sem eigum aðallega að mótmæla?), mér er líka illa við að það sé brotið rúður og kastað snjóboltum. í sannleika sagt er mér alveg ótrúlega illa við það að hafa 2 milljónir yfir höfði mér, og ég ekki einu sinni byrjuð að leigja. Mér er illa við það að í næstu kosningum sé ég ekki neinn flokk sem ég get kosið sem stendur með "mér"  og mér er illa við að sjá sama  fólkið reyna að byggja nýtt land, sem steypti því niður í leðjuna (og neðar). Mér er illa við það að friðsamlegu mótmælin hafi engin áhrif og enginn haggast úr sæti sínu. Hvað er næsta skref þegar það er ekki hlustað á þá friðsömu?


mbl.is Rúður brotnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Ragnheiður
Ragnheiður
Fædd 1989. Reyni eftir fremsta megni að mynda mínar eigin skoðanir En það er samt fólk í kringum mig sem hjálpar mér að sjá báðar hliðar.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband